Skilnaðarráðgjöf Akureyrarbæjar


Akureyrarbær býður foreldrum 0-18 ára barna upp á sérhæfða skilnaðarráðgjöf.

Um er að ræða ráðgjöf, til að koma í veg fyrir og/eða til að draga úr ágreiningi foreldra sem standa í skilnaði eða hafa gengið í gegnum skilnað og vilja stuðla að betri foreldrasamvinnu með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.

Samvinna eftir skilnað (Samarbejde efter skilsmisse - SES) var upphaflega þróað í Danmörku og hafa rannsóknir sýnt marktækan mun á líðan þeirra sem taka þátt í verkefninu og þeirra sem ekki gera það. Um er að ræða gagnreynt námsefni sem er ætlað að hjálpa foreldrum við að takast á við breytingar og áskoranir sem algengar eru í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita.

Foreldrum er bent á heimasíðuna: www.samvinnaeftirskilnad.is

Ef foreldrar telja sig þurfa meiri stuðning eða fræðslu eftir að hafa farið í gegnum námskeiðin á heimasíðunni stendur þeim til boða:

  • Sérhæfð ráðgjöf hjá SES ráðgjöfum Akureyrarbæjar
  • Hópnámskeið. Námskeið fyrir foreldra þar sem ítarlega er fjallað um áhrif skilnaðar á fjölskyldu. Fyrirhugað er að halda næsta námskeið haustið 2023 - dagsetningar verða birtar síðar.
  • Hvert námskeið skiptist í þrjá áfanga þar sem kennt er einu sinni í viku, þrjá klukkutíma í senn:
1. Áhrif skilnaðar á foreldra (vika 1)
2. Viðbrögð barna við skilnaði (vika 2)
3. Samvinna foreldra við skilnað (vika 3)

Umsjónarmenn námskeiðs eru Halldóra Kristín Hauksdóttir, lögmaður velferðarsviðs og Katrín Reimarsdóttir, félagsráðgjafi á velferðarsviði. staðgengils

© 2016 - 2024 Karellen