news

Í tilefni af Degi leikskólans

02. 02. 2024

Í tilefni af Degi leikskólans sem haldin er hátíðlegur 6. febrúar ár fengum við tillögur frá börnunum í Seli að hádegismat. Þær tillögur fóru síðan til matráðar sem valdi úr 4 máltíðir og börnin kusu svo á milli þeirra.

Í boði voru eftirfarandi: pitsa, hamborgari, kjúklingur og að lokum hakk og spaghetti.

Þetta var æsispennandi kosning og munaði aðeins 3 atkvæðum í lokin og hafði pitsan sigur.



© 2016 - 2024 Karellen