news

Skráningardagar í ágúst

26. 06. 2023

Skráningardagar í leikskólum Akureyrarbæjar

Akureyrarbær stendur nú frammi fyrir því verkefni að útfæra betri vinnutíma hjá starfsfólki leikskóla sem kveðið er á um í kjarasamningum og tryggja um leið næga mönnun í leikskólum bæjarins. Einnig er það keppikefli sveitarfélagsins að bæta starfsumhverfi starfsfólks í leikskólum og gera skólana að eftirsóknarverðum vinnustöðum. Á fundi fræðslu- og lýðheilsuráðs 24. apríl 2023 var tekin til umfjöllunar hugmynd um svokallaða skráningardaga í leikskólum Akureyrarbæjar og hlaut hún góðan hljómgrunn. Hugmyndin var samþykkt í bæjarráði í gær, 11. maí 2023. Akureyrarbær hyggst því innleiða slíka skráningardaga í leikskólum bæjarins skólaárið 2023-2024 í því skyni að skapa svigrúm til að mæta fullri fjögurra tíma styttingu vinnuvikunnar hjá starfsfólki í leikskólum. Markmiðið er að þessa daga geti starfsfólk tekið út uppsöfnun á styttingu vinnutíma í heilum dögum. Hugmyndin er að bjóða foreldrum upp á 20 skráningardaga. Þeir yrðu sérmerktir í skóladagatali: sex dagar í kringum jól og áramót, tveir dagar þegar haustfrí eru í grunnskólum, tveir dagar þegar vetrarfrí eru í grunnskólum og þrír í kringum páska. Þar að auki velur hver skóli sjö daga sem henta skólastarfi hvers skóla. Leikskólagjöld lækka yfir árið sem nemur þessum 20 skráningardögum. Þurfa foreldrar að óska sérstaklega eftir skólavist þessa daga með að lágmarki 4ra vikna fyrirvara og greiða sérstaklega fyrir þá skv. gjaldskrá. Þannig er ekki reiknað með mætingu barns á skráningardögum nema það sé sérstaklega skráð. Þeir 13 skráningardagar sem búið er að festa miðast við daga sem ekki er kennsla í grunnskólum og auknar líkur eru á að foreldrar/forráðamenn séu í leyfi frá störfum sínum, ýmist vegna styttingar eða orlofs. Líklega verður óhefðbundið starf innan leikskólanna þessa daga með hugsanlegri blöndun milli deilda og/eða áherslu á útiveru og val.

© 2016 - 2024 Karellen